Vilja taka yfir rekstur heilsugæslunnar

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Sigurður Bogi

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lýsti því yfir á íbúafundi í Njarðvíkurskóla í gær að hann teldi mikilvægt að bærinn tæki yfir heilsugæsluna af ríkinu og kæmi að stjórnun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.

„Við höfum byggt upp góða menntun og breytt viðhorfi til menntunar í Reykjanesbæ. Við höfum umbylt umhverfisásýnd bæjarins og gert vönduðustu þjónustumiðju landsins í þágu aldraðra íbúa. Við höfum byggt á tónlistarhefð, byggt tónlistar- og ráðstefnumiðstöð og lagt grunn að vel launuðum og fjölbreyttum störfum fyrir alla íbúa.

Eigum við ekki að vinna á sama hátt með heilbrigðisþjónustuna og færa hana frá ríkinu?“ spurði Árni.

Hann sagði að af þeim ellefu þáttum sem tilheyrðu fyrirmyndarsveitarfélagi hafði ríkið meðal annars fulla stjórn yfir lögreglu og heilbrigðisþjónustu. „Lögreglan sinnir sínu hlutverki mjög vel hér á Suðurnesjum en við þurfum að styrkja heilsugæsluna og heilbrigðisþjónustuna.

Við byggjum aðeins gott samfélag hér ef þessir þættir eru í lagi. Við viljum að aðstaða íbúa í þessum efnum sé til fyrirmyndar og við getum gert hana þannig ef við fáum einhverju ráðið,“ sagði Árni.

„Ég vil að við bjóðumst til að taka yfir heilsugæsluna frá ríkinu og koma einnig að stjórnun Heilbrigðisstofnunar,“ bætti hann við.

Í tilkynningunni segir að vel hafi verið tekið í mál bæjarstjórans á fundinum. Þar hafi jafnframt komið fram að hann hafi átt fyrstu viðræður við heilbrigðisráðherra sem vilji gjarnan ræða hlutverk sveitarfélaga í stjórn heilsugæslunnar og aðkomu þeirra að stjórnum sjúkrastofnana á landsbyggðinni.

Árni Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. SteinarH
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert