142 km hraða á Reykjanesbraut

Átján ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 142 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Annar ökumaður  sem mældist á 122 kílómetra hraða, einnig á Reykjanesbraut, var auk hraðakstursins að tala í  síma án þess að nota handfrjálsan búnað. Í bíl hins þriðja reyndist hraðamælirinn vera bilaður.

Þrír ökumannanna átján voru erlendir ferðamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert