Áhersla lögð á kynferðisbrotamál

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir Halldór Sveinbjörnsson

„Ég er jákvæð og spennt fyrir að takast á við verkefnið. Einhverjar áherslubreytingar verða með nýju fólki eins og gjarnan er og verða þær mjög líklega í samræmi við áherslur okkar á Suðurnesjum,“ segir Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir, nýskipaður lögreglustjóri í Reykjavík.

Hanna Birna Kristjáns­dótt­ir inn­an­rík­is­ráðherra skipaði í dag Sig­ríði Björk Guðjóns­dótt­ur í embætti lög­reglu­stjóra á höfuðborg­ar­svæðinu, sem þýðir að hún flyst frá embætt­inu á Suður­nesj­um þar sem hún hef­ur verið frá ár­inu 2009. Hún var aðstoðarrík­is­lög­reglu­stjóri á ár­un­um 2007–2008, sýslumaður á Ísaf­irði 2002–2006 og þar áður skatt­stjóri Vest­fjarðaum­dæm­is.

„Ég er búin að vera í löggæslu í langan tíma, tólf ár sem lögreglustjóri og stjórnandi frá árinu 1996. Það verður gaman að koma á nýjan stað og vonandi innleiða þau gildi sem við höfum verið með á Suðurnesjum,“ segir hún.

Fyrsta konan í embættinu

Sigríður segir ekki tímabært að fjalla ýtarlega um komandi áherslubreytingar, enda eigi hún eftir að fara á staðinn og ná tengingu við starfsmenn og heyra þeirra sjónarmið ásamt sjónarmiðum íbúa. „En á Suðurnesjum hefur áhersla verið lögð á baráttuna gegn heimilisofbeldi ásamt eflingu rannsókna í kynferðisbrotamálum og búast má við svipuðum áherslum.“

Sig­ríður Björk er fyrsta kon­an sem gegn­ir embætti lög­reglu­stjóra á höfuðborg­ar­svæðinu. „Ég sit í jafnréttisnefnd lögreglunnar og hef áður lýst því yfir að það þurfi að jafna betur hlutföll karla og kvenna í lögreglu. Ég er því mjög ánægð með þetta,“ segir hún.

Fréttir mbl.is:

Sigríður verður lögreglustjóri

Heimilisofbeldismál í forgang

Stefán sviðsstjóri velferðarsviðs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert