Haraldur ráðinn bæjarstjóri

Haraldur Líndal Haraldsson.
Haraldur Líndal Haraldsson.

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Harald Líndal Haraldsson hagfræðing í stöðu bæjarstjóra.

Í tilkynningu kemur fram að Haraldur hafi mikla reynslu af bæjar- og sveitarstjórastarfi, m.a. sem bæjarstjóri á Ísafirði í 10 ár og í 5 ár sem sveitarstjóri í Dalabyggð. Á undanförnum árum hefur hann starfað sjálfstætt sem ráðgjafi og sérhæft sig í endurskipulagningu í rekstri og fjármálum sveitarfélaga.

Haraldur er 61 árs, kvæntur Ólöfu Thorlacius og eiga þau þrjú uppkomin börn og þrjú barnabörn.

„Það er ánægjulegt að fá einstakling í starf bæjarstjóra sem hefur svo víðtæka og langa reynslu og þekkingu á innviðum og rekstri sveitarfélaga,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur formanni bæjarráðs, í tilkynningunni. „Mörg spennandi verkefni eru framundan og við þurfum að nýta öll þau tækifæri sem eru til staðar til að efla bæjarfélagið. Við hlökkum til samstarfsins við Harald og er ég sannfærð um að reynsla hans eigi eftir að nýtast Hafnarfirði vel.“

Haraldur kemur til starfa hjá Hafnarfjarðarbæ í lok ágúst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert