"Íslendingarnir stórir og sterkir"

Allra þjóða ungmenni eru nú í Laugardalnum þar sem þau etja kappi í knattspyrnu á hinu árlega Rey Cup móti sem þar er haldið í þrettánda sinn. Rok og rigning var þegar fyrstu leikir dagsins fóru fram, en keppendur létu það ekki á sig fá og sáust úrslit á borð við 8-0. 

Erlendir keppendur voru á því að Íslendingarnir væru stórir og sterkir og harðir í horn að taka, en tækninni væri stundum ábótavant.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert