Enn met í kortaveltu ferðamanna

Kátir ferðamenn í miðbænum.
Kátir ferðamenn í miðbænum. mbl.is/Ómar

Enn eru slegin met í kortaveltu erlendra ferðamanna en í júní síðastliðnum greiddu erlendir ferðamenn fjórðungi meira með kortum sínum hér á landi en í júní í fyrra. Mest aukning var í ýmsum skipulögðum ferðum eins og hvalaskoðun, ferðum með leiðsögn og öðrum tegundum pakkaferða. Þá eru ekki meðtaldar greiðslur með reiðufé eða það sem greitt var gegnum milliliði áður en til Íslands var komið.

Þetta kemur fram í tölum frá rannsóknarsetri verslunarinnar. Hæstu upphæðina greiddu erlendir ferðamenn fyrir gistingu og nam erlend kortavelta gististaða rúmlega 2,9 milljörðum kr. sem er 16% hærri upphæð en í júní í fyrra.

Erlend kortavelta bílaleiga jókst um 61% í júní síðastliðnum frá júní í fyrra og nam í síðasta mánuði 1,2 milljörðum kr.

Þá njóta veitingahús góðs af auknum ferðamannastraumi því erlend greiðslukortavelta í þeim geira jókst um 26% og nam 1,4 milljarði kr. í júní.

Erlendir ferðamenn keyptu í verslunum með kortum sínum fyrir 2 milljarða kr. í júní sem er 14% hærri upphæð en í júní í fyrra. Þar af var kortavelta í dagvöruverslunum 429 millj. kr. sem er 33% aukning frá júní í fyrra.

Þá tóku erlendir ferðamenn út reiðufé með kortum sínum í hraðbönkum fyrir 1,7 milljarða kr. sem var 17% hærri upphæð en í júní í fyrra.

Mikill munur eftir þjóðernum

Ferðamenn frá Sviss, Rússlandi og Spáni keyptu fyrir hæstu upphæðir með greiðslukortum ef upphæðum er deilt á hvern ferðamann sem hingað kom í júní eftir þjóðerni. Mikill munur er á kortaveltu eftir þjóðernum sem að einhverju leyti skýrist af því hversu algeng kortanotkun er í hverju landi.

Ætla má að nokkurt samræmi sé í notkun greiðslukorta á Norðurlöndunum og því er athyglisvert að skoða mun á milli kortaveltu á milli þessara þjóða. Á meðan hver Norðmaður greiddi að jafnaði 157 þús. kr. greiddi hver Finni 87 þús. kr.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert