Skúrir eða rigning víða um helgina

Væta verður um helgina og á mánudag, frídegi verslunarmanna.
Væta verður um helgina og á mánudag, frídegi verslunarmanna. mbl.is/Golli

Útlit er fyrir frekar milt veður um verslunarmannahelgina þó að það verði heldur svalara en verið hefur undanfarnar vikur. Ljóst er að það rignir á gesti útihátíða.

Veðurstofan telur að norðaustan- og norðanátt verði ríkjandi og skúrir víða. Þó er spáð austankalda og rigningu syðst á landinu á föstudag.

Eins er búist við því að það hvessi og fari að rigna austanlands á laugardag. Talið er útlit fyrir að þurrt verði í veðri suðvestanlands á sunnudag. Væta verður áfram á mánudag, frídag verslunarmanna, en hlýnandi veður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert