Brúðarkjólar og kanínuveiði í sólinni

Fjölmargir hafa nýtt sér sól og blíðu í höfuðborginni í dag til ýmiss konar útivistar. Í Elliðaárdalnum gaf að líta börn og fjölskyldur að leik, margir voru á reiðhjólum og þeir allra hörðustu stungu sér til sunds í fossinn. Tveir ungir drengir hugðu á kanínuveiðar og lítil snót stillti sér upp í myndatöku í brúðarkjól í tilefni tíu ára brúðkaupsafmælis foreldra sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert