Útifundir vegna Gaza á morgun

Frá útifundi vegna Gaza í Frakklandi.
Frá útifundi vegna Gaza í Frakklandi. AFP

Útifundur Félagsins Ísland-Palestína vegna Gaza verður haldinn hjá bandaríska sendiráðinu við Laufásveg á morgun, fimmtudaginn 31. júlí kl. 17:00. Samhliða fundinum í Reykjavík verður haldinn útifundur á Ráðhústorginu á Akureyri á sama tíma. 

Í fréttatilkynningu félagsins segir að kröfur fundarins séu að blóðbaðið verði stöðvað tafarlaust, umsátrinu um Gaza aflétt strax, að Palestínumenn hljóti alþjóðlega vernd og að hætt verði að vopna Ísraelsher til voðaverka á Gaza. Þá er Obama beðinn um að stöðva fjöldamorðin.

„Blóðbaðið á Gaza heldur áfram. Ísraelsstjórn fer sínu fram og beitir hernaðarmætti sínum án tillits til mótmæla umheimsins með skelfilegum afleiðingum. Öllum er ljóst að Ísraelsríki getur ekki haldið uppi hernaði sínum gegn Gaza eða hernámi sínu í Palestínu nema með Bandaríkin sem fjárhagslegan og hernaðarlegan bakhjarl,“ segir í tilkynningu félagsins.

„Bandaríkin beittu nýlega neitunarvaldi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna tillögu um að stöðva blóðbaðið á Gaza. Það er á valdi Bandaríkjastjórnar að stöðva blóðbaðið. Knýja verður Bandaríkjastjórn til að láta af stuðningi við hernám og stríðsglæpi Ísraelsstjórnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert