Umferðin fer rólega af stað

Margir leggja land undir fót um verslunarmannahelgina.
Margir leggja land undir fót um verslunarmannahelgina. Styrmir Kári

Fjölmargir leggja land undir fót um verslunarmannahelgina og búast má við að umferðin þéttist í kvöld og á morgun að sögn lögreglu.

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi hefur umferðin ekki verið mikil í dag en búist er við að fleiri verði á ferðinni á morgun.

Lögreglan á Selfossi segir umferðina í gegnum bæinn hafa verið nokkuð þétta í dag en gengið vel fyrir sig. Þeir sem leggja leið sína á þjóðhátíð þurfa að aka í gegnum Selfoss og segir lögregla að meiri þungi færist líklega í umferðina á morgun og myndast þá oft stífla á þjóðveginum þar sem hann liggur í gegnum bæinn.

Evrópumeistaramótið í mýrarbolta fer fram á Ísafirði um helgina og eru hátíðargestir farnir að týnast rólega í bæinn. Umferðin hefur þó verið hæg en reiknað er með að fleiri streymi á svæðið síðar í kvöld og á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert