Ekið á hjólreiðamann við Hringbraut

Fólksbifreið var ekið á hjólreiðamann við eldsneytisstöðina N1 á Hringbraut stuttu fyrir miðnætti. Lögregla og sjúkralið fóru á staðinn, en sjúkrabifreið flutti hjólreiðamanninn á sjúkrahús. Frekari upplýsingar um líðan hans eru ekki fáanlegar að svo stöddu.

Annar árekstur bifreiðar og reiðhjóls varð fyrr í kvöld þegar flutningabifreið var ekið á konu á hjóli við Sæbraut. Konan var flutt á slysadeild, en meiðsli hennar voru ekki talin alvarleg.

Frétt mbl.is: Ekið á hjólreiðamann á Sæbraut

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert