Aldrei fleiri lokanir á Menningarnótt

Kort Menningarnætur

Aldrei hefur verið lokað fyrir bílaumferð í miðborginni jafn mikið og nú vegna Menningarnætur. „Við ákváðum að fara að ráðleggingum um fjörutíu samtaka, stofnana og sérfræðinga varðandi öryggismál. Við viljum tryggja öryggi fólks,“ sagði Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu. Þessar aðgerðir eiga að tryggja öryggi bæði gangandi og akandi vegfarenda og auðvelda aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs um svæðið. „Við viljum geta rýmt svæðið á innan við hálftíma ef til þess kæmi eins og til dæmis eldsvoði.“

Slæm reynsla frá árinu áður

Ástæðan fyrir þessari umfangsmiklu lokunum er meðal annars slæm reynsla frá árinu áður. Þá voru dæmi um að ökumenn virtu ekki lokanir og stofnuðu öðrum í hætti vegna framgöngu sinnar. „Við hvetjum fólk til að taka strætó, leggja á bílastæðum og taka strætó nær bænum,“ sagði Einar.

Á meðfylgjandi korti er sýnt umfang svæðisins sem verður lokað fyrir bílaumferð á laugardaginn. Búist er við að um hundrað þúsund manns leggi leið sína í miðbæinn.

Gestir eru hvattir til að taka strætó, en frítt verður í strætó í dag.

Sæbrautin verður lokuð þar sem hún mætir Snorrabrautinni en þar er leyfð bílaumferð. Gamla Hringbrautin verður lokuð en hægt að keyra Hringbrautina. Tilvalið er því fyrir gesti að leggja á bílastæðinu við Háskóla Íslands og ganga í miðbæinn.

Á meðan Reykjavíkurmaraþonið stendur verða nokkrar götur lokaðar fyrir umferð rétt á meðan hlaupararnir fara sína leið. Hringurinn nær út á Seltjarnarnes.

Klukkan 8.40 verður ræst í maraþonhlaup, hálfmaraþon og boðhlaup. Tæpum klukkutíma seinna verður 10 km hlaupið ræst. Tímatöku lýkur 14.40.

Allir vagnar flytja gesti heim klukkan ellefu

Hefðbundið leiðakerfi Strætó verður aftengt klukkan 23 á Menningarnótt og allir vagnar verða settir í það verkefni að flytja gesti heim úr miðbænum.

Farið verður frá BSÍ og Hlemmi. Mikilvægt er að gestir kynni sér hvert vagnarnir fara, en þeir verða merktir með bókstöfum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu strætó.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert