Potturinn áttfaldur næsta laugardag

Fyrsti vinningur í lottóinu verður hvorki meira né minna en áttfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor rúmlega 450.000 kr. í vinning. Fyrstu vinningur kvöldsins nam rúmlega 76,6 milljónum króna.

Annar miðinn var keyptur í Fjarðarkaupum, Hólshrauni 1b í Hafnarfirði, en hinn hér á heimasíðunni, www.lotto.is.  Einn var með allar Jókertölurnar réttar og fær hann í sinn hlut 2 milljónir. Miðinn var keyptur í Happahúsinu, Kringlunni 8-12, Reykjavík.

Sex miðaeigendur voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær hver þeirra 100.000 kr. í vinning. Tveir vinningsmiðanna voru keyptir hér á heimasíðunni, en  hinir fjórir í N1 v/Austurveg á Selfossi, Ak-inn á Akureyri, Daníelsbita í Mosfellsbæ og Smáranum söluturni, Dalvegi 16c í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert