Neytendastofa vill ítreka fyrir neytendum sem eiga uppblásna heita potta frá Mspa – Oriental Recreational að taka þá strax úr sambandi og skila til viðeigandi söluaðila. Hætta er á raflosti og drukknun þar sem vatnið í pottinum getur komist í beina snertingu við hita element sem er tengt aðal aflgjafanum. Vitað er um tvö slys sem hafa orðið í Evrópu.
Þær verslanir sem seldu umrædda potta eru Bauhaus, Byko og Húsasmiðjan og viðskiptavinir sem enn hafa ekki skilað sínum pottum, eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til þeirra vegna málsins.