Seinkun á Kaupmannahafnarflugi

mbl.is/Þórður

Vegna tæknilegra örðugleika varð þriggja tíma seinkun á flugi Icelandair til Kaupmannahafnar í dag. Vélin átti að fara í loftið 13:15 en hóf sig hins vegar ekki til flugs fyrr en 16:40.

Fram kemur á heimasíðu Icelandair að um sé að ræða flug FI212 til Kaupmannahafnar og flug FI213 til Íslands. Vélin lendir svo í Keflavík um kl. 23:25 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert