Bifreið brann í Kletthálsi

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Styrmir Kári

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld um klukkan 20. Eldur hafði komið upp í bifreið sem stóð í Kletthálsi. Að sögn slökkviliðsins logaði töluvert í bílnum og tók um 30 mínútur að slökkva eldinn, sem talinn er hafa komið upp vegna bilunnar. 

Ekki er vitað um umfang tjónsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert