Nýr hjólastígur opnaður í Suðurhlíð

Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, opnaði nýja hjólastíginn …
Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, opnaði nýja hjólastíginn með formlegum hætti í hádeginu. mbl.is/Kristinn

Evrópsk samgönguvika hófst í dag og af því tilefni opnaði Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, nýjan hjólastíg við Suðurhlíð.

Markmið samgönguvikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Boðið verður upp á ýmsa viðburði í borginni til að vekja athygli á vistvænum ferðavenjum í Reykjavík. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ráðstefna um vistvænar samgöngur á vegum Grænu orkunnar verður haldin á Grand Hótel miðvikudaginn 17. september og hefst hún kl. 8:50. 

Á fimmtudag kl. 18:00 er boðið upp á hjólaferð um borgina undir leiðsögn Árna Davíðssonar og lýkur ferðinni í súpu á Loft hostel.

Á föstudag verður haldin ráðstefnan Hjólum til framtíðar í Iðnó með fjölbreyttri dagskrá.  Í lok ráðstefnunnar afhendir borgarstjóri hjólaskálina sem er viðurkenning fyrir eflingu hjólreiða.  Í beinu framhaldi af ráðstefnunni er mótttaka í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem borgarstjóri afhendir Samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar.

Á laugardag hefja Hjólafærni á Íslandi og Landsamtök hjólreiðarmanna á ný vikulegar hjólreiðar um höfuðborgarsvæðið frá Hlemmi.  Lagt verður af stað kl. 10 í tveggja tíma ferð.

Mánudaginn 22. september er „Bíllausi dagurinn“ en þá eru borgarbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima, þegar haldið verður til vinnu eða skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert