Víða unnið að gatnaframkvæmdum

Mynd úr safni
Mynd úr safni mbl.is/Árni Sæberg

Göngu- og hjólastígur meðfram Álftanesvegi verður endurbyggður á um 1 km kafla til suðurs frá hringtorgi við Bessastaðaveg. Gerður verður göngustígur til bráðabirgða milli Fógetatorgs og Garðavegar, en hjólandi umferð þarf að nota akbrautina á þessum kafla meðan á framkvæmd stendur.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir ennfremur að reiknað er með að verkinu ljúki 18. október næstkomandi.

Undir hringveg á Hellisheiði á móts við gatnamótin inn á Gígahnúksveg er unnið að því að koma fyrir stálræsi. Vegna framkvæmdanna hefur umferðarhraði verið tekinn niður í 50 km/klst í gegnum þetta svæði. Er umferð hleypt um hjáleið. Áætluð verklok er 4. október næstkomandi.

Þá bendir Vegagerðin sérstaklega á að hálkubletti er víða að finna á Hálfdán og Hrafnseyrarheiði. Aðrar leiðir á landinu eru hins vegar greiðfærar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert