Kettlingarnir komnir á spena

Kettlingarnir þrír fengu að drekka úr pela í Kattholti þar …
Kettlingarnir þrír fengu að drekka úr pela í Kattholti þar til fósturlæða fannst. Ljósmynd/Kattholt

Kettlingarnir þrír sem fundust í Hafnarfirði um helgina hafa fengið tímabundið heimili hjá mjólkandi læðu. 

Samkvæmt upplýsingum frá Kattholti hafði fjöldi fólks samband við Kattholt í kjölfar auglýsingar kattaathvarfsins á Facebook og fréttar mbl.is og reyndist því auðsótt að finna hentuga fósturmóður.

 Kettlingarnir verða hjá fósturmóður sinni fram að átta vikna aldri en þá verða þeir fluttir aftur í Kattholt þar sem reynt verður að finna þeim varanlegt heimili.

Fundu þrjá kettlinga í Hafnarfirði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert