Mikil mengun við Mývatn

Eldgosið í Holuhrauni.
Eldgosið í Holuhrauni. mbl.is/RAX

Mjög háir mengunartoppar hafa mælst í nótt og í morgun við Mývatn en einnig hefur mengun verið að mælast á Húsavík, samkvæmt upplýsingum almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Veðurstofan bendir á að í dag er spáð sunnanátt og dreifist þá gasmengunin frá eldgosinu í Holuhrauni til norðurs og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri. Suðvestlægari vindur í kvöld og færist þá svæðið heldur til austur allt austur að Þistilfirði.

Fólk á svæðinu er beðið um að fylgjast vel með mælum Umhverfisstofnunar á www.loftgaedi.is

Verði fólk vart við mikla mengun er það beðið að halda sig innandyra og forðast óþarfa útiveru.  Til að minnka enn áhrif mengunar innandyra er ráðlagt að loka gluggum og hækka á ofnum þegar mengunin gengur yfir.

Með því að smella HÉR er hægt að nálgast frekari upplýsingar um mengun og loftgæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert