Stöðvuðu tugi sendinga frá Kína

Rafmagnstæki, leikföng ofl þurfa að vera CE merkt
Rafmagnstæki, leikföng ofl þurfa að vera CE merkt Tollstjóri

Tollurinn þurfti að stöðva á milli 70 og 80 sendingar frá Kína á tveggja mánaða tímabili í sumar vegna þess að CE merkingar vantaði. Einkum var um að ræða síma og spjaldtölvur.

„Tollstjóri vill af gefnu tilefni minna á að rafmagnstæki sem keypt eru erlendis eða pöntuð á netinu þurfa að bera CE merkingu til að flytja megi þau til landsins samkvæmt gildandi tilskipunum á evrópska efnahagssvæðinu. (EES),“ segir í tilkynningu.

Á Íslandi gilda sömu reglur um CE-merkingar og í öðrum EES-ríkjum þar sem landið er aðili að EES-samningnum. 

Vöruflokkar sem heyra undir umræddar tilskipanir EES, auk rafmagnstækja,  eru til dæmis leikföng, vélar,  persónuhlífar og notendabúnaður fjarskiptakerfa og síma

CE-merking er skilyrði fyrir markaðssetningu tiltekinna vara á Evrópska efnahagssvæðinu. Merkið er auðkennismerking sem gefur til kynna að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert