Lögðu hald á 150 kannabisplöntur

AFP

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í austurborginni um síðustu helgi. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, auk búnaðar sem fylgir starfsemi af þessu tagi. Karlmaður á fimmtugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu, sem telst upplýst. 

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert