Ekkert ferðaveður á morgun

Færðin verður sérstaklega slæm á norðanverðu landinu þar sem hvassviðri …
Færðin verður sérstaklega slæm á norðanverðu landinu þar sem hvassviðri verður mest ásamt slæmu skyggni og hálkublettum. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Stormur verður á Norður- og Norðausturlandi á morgun. Reikna má með hvassviðri og snjókomu sem hefst í fyrramálið á Vestfjörðum og flytur sig austar þegar líða fer á daginn.

Færðin verður sérstaklega slæm á norðanverðu landinu þar sem hvassviðri verður mest ásamt slæmu skyggni og hálkublettum.

Fólk er því hvatt til þess að vera ekki á ferðinni að óþörfu.

Búast má við snjókomu og hvassviðri á höfuðborgarsvæðinu

Hvassviðri verður á höfuðborgarsvæðinu og er þeim sem eru á vanbúnum bílum ráðlagt að vera ekki mikið á ferðinni, sérstaklega ekki á milli landshluta.

Hitastig verður við frostmark og búast má við einhverri snjókomu.

Veðurstofan varar við fólksferðum við fjöll þar sem vindurinn eflist mjög og hætta getur myndast. Á það við landið allt en sérstaklega Norður- og Suðausturland.

Hægt er að fylgjast með veðurspánni á veðurvef mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert