„Kópavogsbær brást bæjarbúum“

Frá Kópavogi í gærmorgun.
Frá Kópavogi í gærmorgun. mbl.is/Árni Sæberg

Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, harmar þann atburð sem átti sér stað í Kópavogi í gær, þegar „Kópavogsbær brást bæjarbúum og götur bæjarins voru ekki saltaðar.“ 

Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér í kvöld, en eins og greint var frá í gær lentu fjölmargir ökumenn í bænum í umferðarteppu og umferðaróhöppum í kjölfar ofankomunnar í fyrrinótt.

„Félagið telur þennan atburð virkilega alvarlegan enda olli hann fjölda umferðarslysa- og óhappa sem annars hefðu að öllum líkindum ekki orðið. Enda er ekki leyfilegt fyrir almenning að setja bíla sína á nagladekk fyrr en 1. nóvember. Þá fer félagið fram á það að bæjarstjórn gefi félaginu ásamt bæjarbúum skýrari svör um hvað nákvæmlega fór úrskeiðis þennan morgun. En einnig að útlistað sé hvernig eigi að bæta úr verkferlum bæjarins, þannig að útilokað sé að slíkt eigi sér stað aftur,“ segir í ályktuninni.

„Eins og nefnt er að ofan varð fjöldinn allur af umferðaslysum- og óhöppum þegar fólk var á leið til vinnu og í skóla þennan morgun sem rekja má til mistaka starfsmanna bæjarins sem bæjaryfirvöld bera ábyrgð á. Vill Týr hvetja þá aðila sem urðu fyrir tjóni vegna þessara mistaka að kanna rétt sinn til skaðabóta úr hendi bæjarins. En telja verður að bærinn geti hæglega borið ábyrgð á því tjóni,“ segir jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert