Vill verða formaður sameinaðs félags

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Jens Garðar Helgason hyggst bjóða sig fram til formanns á sameiginlegum aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskivinnslustöðva sem haldinn verður á Hilton Nordica 31. október en fyrir aðalfundinum liggur tillaga um sameiningu samtakanna. Þetta kemur fram á vefsíðu LÍÚ.

„Íslenskur sjávarútvegur er nútímaleg, hátæknivædd atvinnugrein í harðri alþjóðlegri samkeppni. Það felast mikil tækifæri í því fyrir sjávarútveginn að sameina fyrirtæki sem starfa að veiðum, vinnslu, sölu- og markaðssetningu sjávarafurði í ein, öflug samtök. Við þurfum að horfa til framtíðar, greina sóknarfærin og vinna að eflingu og samkeppnisfærni sjávarútvegsins þjóðinni allri til hagsbóta. Ég vil bjóða fram mína krafta í því starfi sem framundan er og þá reynslu sem ég hef af sjávarútvegsrekstri," er haft eftir honum.

Jens er fæddur árið 1976 og uppalinn á Eskifirði. Hann var stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands 1997 - 2000. Jens hóf störf hjá Fiskimiðum ehf. á Eskifirði árið 1999 og tók við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins árið 2001 og hefur því verið þar við störf síðan. Hann er einnig formaður bæjarráðs í Fjarðarbyggð.

Jens Garðar Helgason
Jens Garðar Helgason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert