Verkfallið hefði mikil áhrif á nemana

Gert er ráð fyrir að á þeim dögum sem efnt …
Gert er ráð fyrir að á þeim dögum sem efnt er til verkfalla verði hverju sinni tryggð sambærileg mönnun og tíðkast á frídögum. Morgunblaðið/Eggert

Boðaðar verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands munu meðal annars hafa töluverð áhrif á nemendur á fjórða, fimmta og sjötta ári í læknisfræði í Háskóla Íslands sem stunda verknám á Landspítalanum.

Að loknu þriggja ára bóknámi hefja nemendur á fjórða ári verknám á vöktum á spítalanum. Næstu þrjú árin fylgja þeir læknum á flestum deildum og læra og setja sig í verklegu hlið starfsins.

Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 27. október til miðnættis aðfaranótt miðvikudagsins 29. október 2014, eða í tvo sólarhringa, leggja læknar á kvenna- og barnasviði Landspítala niður störf. Gert er ráð fyrir að á þeim dögum sem efnt er til verkfalla verði hverju sinni tryggð sambærileg mönnun og tíðkast á frídögum.

Þá daga sem boðað verkfall stendur yfir mega nemar á þeim deildum þar sem það stendur yfir ekki mæta á spítalann og fylgja læknunum, kennurum sínum. Öll kennsla þar sem sjúklingar koma nálægt er óheimil.

Mjög mikil áhrif á einstaka áfanga

„Þetta mun hafa mismikil áhrif á mismunandi áfanga. Þetta mun hafa mjög mikil áhrif á einstaka áfanga þar sem nemendur verja miklum tíma á deildum spítalans og gætu nemendur misst af allt að helmingi tímans,“ segir Ragnhildur Hauksdóttir, formaður Félags læknanema í samtali við mbl.is, aðspurð um áhrif boðaðra verkfallsaðgerða á nemendur í læknisfræði í HÍ.

Takist ekki samningar á tímabilinu sem verkfallsaðgerðirnar hafa verið boðaðar gætu sumir nemanna misst um 40% tímans sem þau eiga að verja við verklegt nám á deildunum.

Þetta eru til að mynda nemar sem eiga að fylgja læknum á gjörgæslu. Læknanemarnir verða að ljúka vissum fjölda vakta á hverri deild og því verða þeir að vinna vaktirnar sem þeir kunna að missa af vegna verkfallsaðgerðanna síðar. 

Á mánudaginn stendur til að nemar á fimmta ári gangist undir bóklegt og verklegt próf í barnalæknisfræði. Komi til verkfalls verður prófinu frestað en um verkfallsbrot væri að ræða ef læknararnir sem kenna áfangann mæta og halda prófið.

Þau ryðja brautina fyrir okkur

Félag læknanema sendi frá sér ályktun í gær þar sem meðal annar kom fram að félagið harmaði að Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélag Íslands sjái sig knúin til að boða til verkfalls. 

 „Við styðjum læknana 100% í þeirra kjarabaráttu, þau eru að ryðja brautina fyrir okkur. Við viljum ekki stuðla að verkfallsbrotum en viljum á sama tíma tryggja að kennsla fari ekki úr skorðum,“ segir Ragnhildur.

Auk lækna á kvenna- og barnasviði Landspítalans leggja læknar á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og á rannsóknarsviði Landspítala niður störf þessa tvo sólarhringa. 

Á heimasíðu Læknafélags Íslands má lesa nánar um boðaðar verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands. 

Næst verður fundað í læknadeilunni á mánudag.
Næst verður fundað í læknadeilunni á mánudag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert