Á flótta undan lögreglu á ofsahraða

Manninum var m.a. veitt eftirför eftir Sæbraut. Myndin er úr …
Manninum var m.a. veitt eftirför eftir Sæbraut. Myndin er úr safni. mbl.is/Sæbraut

Ökumaður gerði tilraun til að stinga lögreglumenn af um klukkan fimm í morgun. Ökumaðurinn ók mjög greitt eftir Sæbraut í Reykjavík, en lögreglan segir að hann hafi mælst á 135 km hraða. Á flóttanum ók hann niður umferðarskilti og stórskemmdi bifreiðina.

Lögreglan hafði loks hendur í hári mannsins sem er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert