Enginn með allar tölur réttar

Enginn var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og gengur fyrsti vinningur því til næsta úrdráttar. Í pottinum voru 22.287.590 krónur.

Lottótölur kvöldsins voru 7 - 8 - 13 - 24 - 38. Bónustalan var 33. Einn fékk bónusvinning og fékk hann 693.500 krónur í vinning. Um var að ræða áskriftarmiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert