Ók á ljósastaur

Sjúkrahúsið Ísafirði Í
Sjúkrahúsið Ísafirði Í mbl.is/Sigurður Bogi

Klippa þurfti ökumann út úr bifreið sinni eftir að hann hafði ekið á ljósastaur á Skutulsfjarðarbraut í morgunsárið. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun, að sögn lögreglunnar á Ísafirði. 

Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar en hann er ekki mjög alvarlega slasaður.

Erill var í sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu í nótt og er það meðal annars rakið til skemmtanahalds á svæðinu en fjölmörg hrekkjavökupartý voru í gærkvöldi og í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert