Schola cantorum á allra heilagra messu

Schola cantorum,
Schola cantorum, Þórður Arnar Þórðarson

Allra heilagra messa, þegar minnst er látinna, er haldin fyrsta sunnudag í nóvember. Mörg fegurstu tónverk kirkjunnar, sálumessur, mótettur og sálmar, tengjast þessum degi. Í Hallgrímskirkju hefur sú hefð skapast að halda tónleika þann dag með úrvali slíkra verka.

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, flytur að þessu sinni kirkjuleg kórverk eftir samtímatónskáld sem þekkt eru fyrir tónmál sem tengir saman fortíð og nútíð.

Leiðarstef tónleikanna er Lofsöngur Símeons (Nunc dimittis), sem hljómar í þremur tónsetningum eftir Arvo Pärt, Pawel Lukaszewski og Hreiðar Inga Þorsteinsson. Af öðrum verkum má nefna Salve Regina fyrir kór og orgel eftir Arvo Pärt, Kyrie og Christus Vincit eftir James MacMillan og Lux Aurumque eftir Eric Whitacre. Glænýtt verk, O Crux, eftir Sigurð Sævarsson verður frumflutt, en verkið er afmælisgjöf til stjórnanda kórsins.

Íslensku tónskáldin Anna Þorvaldsdóttir og Þorkell Sigurbjörnsson eiga líka verk á efnisskránni.

 Í tveimur verkanna leikur Björn Steinar Sólbergsson á Klaisorgel Hallgrímskirkju, en einsöngshlutverk eru í höndum söngvara Schola cantorum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Í næstu viku heldur Schola cantorum til Stokkhólms, þar sem hann flytur sömu efnisskrá í Dómkirkjunni (Storkyrkan) sunnudaginn 9. nóvember. Föstudaginn 7. nóvember heldur kórinn kynningartónleika með alíslenskri efnisskrá í Konunglega Tónlistarháskólanum, segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert