Bílvelta í Geitagerði

mbl.is/Hjörtur

Bíll valt við Geitagerði á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar í morgun. Töluverð ísing er á veginum, og rann bíllinn því til með þeim afleiðingum að ökumaður missti stjórn á honum og hann valt.

Ökumaður bílsins slapp ómeiddur, og að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki fór mun betur en á horfðist. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert