Maðurinn fannst látinn

mbl.is

Karlmaður, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir og leitað var að með aðstoð björgunarsveita, fannst látinn klukkan 12:10 í dag á Miðnesheiði norður af öryggisgirðingu sem afmarkar haftasvæði Keflavíkurflugvallar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

„Maðurinn var í heimsókn hjá ættingjum sínum hér á landi en hann var pólskur, 42 ára að aldri, og mun hafa átt við andleg veikindi að stríða. Hann fór frá dvalarstað sínum í Reykjanesbæ um kl. 17:30 í gær og þegar hann skilaði sér ekki heim leituðu ættingjar hans til lögreglu sem fór að svipast um eftir manninum sem var af og til í símasambandi við ættingja sína

Um kl. 23 í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveita og hófst skipuleg leit að manninum um miðnættið. Veður fór þá versnandi með vaxandi hvassviðri og rigningu. Um kl. 01 ræddi maðurinn símleiðis við ættingja og gat þá ekki gert grein fyrir því hvar hann var en sagðist vera orðinn blautur og kaldur.

Um kl. 02 var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og kom hún til leitar. Björgunarsveitarmenn fundu síðan manninn eins og áður segir og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Fréttir mbl.is:

Pawel er fundinn

Fjölmenni leitar að Pawel

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert