Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sleppt tveimur af mönnunum fjórum sem handteknir voru í tengslum við líkamsárás á Hverfisgötu í gærkvöldi. Enn hefur ekkert spurst til fimmta mannsins sem lýst var eftir í dag.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu lágu mennirnir tveir sem voru látnir lausir ekki undir rökstuddum grun og var því sleppt. Fimmti maðurinn sem lýst var eftir í dag hefur ekki fundist.
Mennirnir eru grunaðir um að haf stungið karlmann með hnífi í heimahúsi á Hverfisgötu. Fórnarlambið er í lífshættu og er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans.
Lýst eftir manni vegna líkamsárásar
Fjórir í haldi vegna hnífsstungu