Lögreglunám verði á háskólastigi

Frá útskrift Lögregluskólans.
Frá útskrift Lögregluskólans. mbl.is/Ómar Óskarsson

Nýnemar verða ekki teknir inn í Lögregluskóla ríkisins á meðan innanríkisráðuneytið er með skýrslu starfshóps sem endurskoða átti skipulag og starfsemi skólans til meðferðar.

Þann 14. maí síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingar á lögreglulögum sem varða almenn inntökuskilyrði í Lögregluskóla ríkisins. Einnig var samþykkt að ráðherra skyldi mynda starfshóp til að endurskoða skipulag og starfsemi Lögregluskóla ríkisins og gera tillögu að framtíðarskipan lögreglumenntunar.

Starfshópurinn skilaði tillögum sínum, ásamt greinargerð, til ráðherra þann 15. september s.l.

Ráðuneytið er með skýrslu starfshópsins til meðferðar og þar til annað verður ákveðið verða ekki teknir inn nýnemar í skólann.

Straumlínustjórnun beitt

Ráðuneytið óskaði í dag eftir umsögnum um tillögur starfshópsins en þær gera meðal annars ráð fyrir að námið verði þriggja ára nám á háskólastigi, að skólinn verði sjálfstæð eining en menntun útvistað til menntakerfis að stórum hluta og að Lögregluskólinn verði fræðslu- og rannsóknarsetur lögreglu.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri var fulltrúi innanríkisráðuneytisins og verkefnastjóri starfshópsins. Með henni sátu í hópnum þau Frímann Birgir Baldursson varðstjóri, fulltrúi Landssambands lögreglumanna, Ólafur K. Ólafsson lögreglustjóri, fulltrúi ríkislögreglustjóra, Karl Gauti Hjaltason, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Eiríkur Hreinn Helgason yfirlögregluþjónn, fulltrúi Lögregluskóla ríkisins og Þórir Ólafsson, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Starfshópurinn beitti aðferðum straumlínustjórnunar í vinnu sinni. Stofnuð voru 22 verkefni í upphafi sem notuð voru sem grundvöllur fyrir stefnumótun hópsins. Starfshópurinn hélt alls 14 vinnufundi frá 20. júní til 12. september. Þá voru haldnir 10 fundir með hagsmunaaðilum auk fjölda óformlegra vinnufunda.

Megin tillögur starfshópsins eru þær að Lögregluskóli ríkisins verði framvegis sjálfstæð eining sem vistuð verði hjá ríkislögreglustjóra. Hlutverk skólans verði fræðslu- og rannsóknarsetur og að sjá um þróun og uppbyggingu grunnmenntunar lögreglu með þjónustusamningum svo og að sjá um framhaldsnám fyrir lögregluna. Hópurinn leggur til að samið verði við skólastofnun um kennslu grunnnáms og leggur til að það verði Háskólinn á Akureyri og Keilir. Lagt er til að grunnmenntun lögreglumanns, tveggja ára bóklegu námi og eins árs starfsnámi, ljúki með bakkalárgráðu og að hugað verði að frekari menntun í kjölfar bakkalárgráðu sem lyki með meistaragráðu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert