Vilja Reykvíking sem ráðherra

mbl.is/Hjörtur

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að tilnefna einn af þingmönnum Reykjavíkurkjördæmanna tveggja til að gegna embætti innanríkisráðherra í stað Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.

„Mikilvægt er að afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður, leiði ekki til þess að vægi Reykjavíkurkjördæmanna í ríkisstjórn verði minna en ella. Í dag kemur einungis einn af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins frá Reykjavík, sjálfu höfuðvígi flokksins. Þá kemur enginn af ráðherrum flokksins frá Reykjavíkurkjördæmi Suður, sem ásamt Reykjavíkurkjördæmi Norður er næststærsta kjördæmi landsins. Það er því eðlilegt að næsti ráðherra Sjálfstæðisflokksins komi frá höfuðborginni,“ segir í ályktuninni.

Frétt mbl.is: Pétur vill verða ráðherra

Frétt mbl.is: Bjarni velji hæfasta einstaklinginn

Frétt mbl.is: Sjálfstæðiskonur vilja sjálfstæðiskonu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert