Fyrsti vinningur gekk ekki út

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Enginn vann fyrsta né annan vinning í Eurojackpot eða Jókerinn í kvöld. Eistlendingur og tveir Þjóðverjar skiptu hins vegar með sér þriðja vinningi og hlýtur hver þeirra um 26,8 milljónir króna.

Rúmur sjö og hálfur milljarður er í lukkupottinum fyrir að vera með allar tölurnar réttar en enginn var svo heppinn þetta skiptið. Af Jókernum er það að segja að enginn vann fyrsta vinning en einn var með fjórar tölur réttar í réttri röð. Hann fékk 100.000 krónur í sinn hlut en miðinn var keyptur á lotto.is að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá..

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert