Reykjanesbær verður með 3,62% álag á útsvar á næsta ári og verður útsvarshlutfall þeirra því 15,05%. Flest sveitarfélög á landinu eru með 14,52% útsvar.
Reykjanesbær er skuldugasta sveitarfélag landsins og þarf að grípa til viðamikilla aðgerða til að bæta fjárhagsstöðuna.
Meðalútsvar á landinu á árinu 2015 verður samkvæmt ákvörðun sveitarfélaga 14,44% og er óbreytt frá árinu 2014.
Sveitarfélög geta samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga ákveðið útsvar á bilinu 12,44%-14,52%. Af 74 sveitarfélögum leggur 71 á sama útsvar á árinu 2015 og á þessu ári. Tvö sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Grýtubakkahreppur hækkaði útsvarshlutfallið en tvö sveitarfélög, Stykkishólmsbær og Ásahreppur, lækkuðu það.
Hér má skoða útsvarshlutfall einstakra sveitarfélaga.