Haldi kyrru fyrir í bifreiðum sínum

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Akureyri hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni vegna veðurs og færðar. Þeir sem fastir eru í bifreiðum sínum eru beðnir að halda kyrru fyrir í þeim og alls ekki yfirgefa þær.

„Eins og staðan er núna er veðrið svo slæmt að björgunarsveitir og lögregla komast ekki til að aðstoða fólk en þeir koma þegar veður leyfir. Veðrið á að ganga niður fljótlega eftir miðnætti,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert