Fluttur á slysadeild eftir árekstur

Að minnsta kosti tveggja bíla árekstur varð á Miklubraut, neðan við Ártúnsbrekku, á sjötta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur á slysadeild en ekki er vitað um meiðsli hans, að svo stöddu.

Misvísandi fregnir hafa borist af árekstrinum en ábendingar sem mbl.is hefur fengið frá vegfarendur hafa bæði verið á þá leið að um fimm bíla árekstur hafi verið að ræða og einnig að um sjö bíla árekstur hafi verið að ræða. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segist hins vegar aðeins hafa fengið upplýsingar um tveggja bíla árekstur.

Nokkrar tafir hafa orðið á umferð vegna árekstursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert