Engin alvarleg slys urðu á fólki í hörðum þriggja bíla árekstri á Glerárgötu, Akureyri um klukkan 16 í dag.
Að sögn sjónarvotts skullu tveir bílar saman með þeim afleiðingum að annar þeirra kastaðist á þriðja bílinn sem beið á ljósum.
Samkvæmt lögreglunni á Akureyri hugðist einn leita á slysadeild vegna eymsla í baki eftir áreksturinn en annars sluppu allir hlutaðeigandi með skrekkinn. Lítið sést á einum bílanna en hinir tveir eru mikið skemmdir. Greiðlega gekk að fjarlæga þá af vettvangi.