Rúta frá Grayline í vandræðum

Iceland Excursions.
Iceland Excursions. Ljósmynd/Iceland Excursions - Allrahanda

Hópferðabíll frá fyrirtækinu Iceland Excursions Allrahanda - Gray Line fór út af veginum í Þrengslum í kvöld og er unnið að því að koma honum aftur upp á veg. Fjöldi farþega var um borð í rútunni og þurfti að sækja þá til að hægt væri að halda ferðinni áfram. Engan sakaði í óhappinu en talið er að rútan hafi hreinlega fokið út af veginum.

Engar upplýsingar fengust um málið frá Grayline og kvaðst vaktmaður ekki hafa tíma til að sinna fjölmiðlum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert