Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja og hálka er í uppsveitum á Suðurlandi.
Hálka og skafrenningur í Svínadal en annars er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi.
Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingsfærð er á Kleifarheiði. Ófært er yfir Vatnsfjarðarháls en fært fyrir Vatnsfjarðarnes.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og éljagangur er á flestum leiðum á Norðurlandi.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á fletum leiðum á Austurlandi. Hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði.
Hálka eða hálkublettir er með suðausturströndinni.