Atli Erlendsson, matreiðslumaður á Grillinu á Hóteli Sögu, hlaut í dag titilinn matreiðslumaður ársins eftir skemmtilega lokakeppni í Hörpu. Annað sætið hlaut Steinn Óskar Sigurðsson matreiðslumaður í Vodafone. Yfirdómari keppninnar Matti Jänsen frá Finnlandi.
Verkefni keppenda var að elda forrétt og aðalrétt úr úrvali hráefna beint frá bónda, upp úr óvissukörfu sem hulunni var svipt af degi fyrir keppni.
Upphaflega sendu sautján matreiðslumenn inn uppskriftir í keppnina sem haldin var með nýju sniði í ár. Tíu komust áfram í undanúrslit og elduðu uppskriftir sínar með íslenskan þorsk í aðalhlutverki fyrir dómnefnd. Þar voru fjórir hlutskarpastir og tryggðu sér þáttökurétt í lokakeppninni í dag, þeir Atli og Steinn, Axel Clausen (Fiskmarkaðurinn) og Kristófer Hamilton Lord (Lava Bláa Lónið).