Baráttan mótað þjóðarsálina

„Barátta þjóðarinnar við náttúruöflin á sér jafn langa sögu og byggð í landinu. Náttúruváin hefur í gegnum aldirnar birst í ýmsum myndum og ekki síst í formi eldsumbrota.  Baráttan hefur mótað þjóðarsálina þannig, að við náttúruógn þjappar þjóðin sér saman og allir leggjast á eitt við að tryggja öryggi samfélagsins,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.

Sigmundur ritaði grein í tilefni af goslokunum í Holuhrauni. Gosið stóð yfir í 180 daga og samkvæmt upplýsingum frá vísindamönnum var það eitt hið stærsta í sögunni. Eftir stendur um 85 ferkílómetra hraunbreiða á svæðinu norðan Vatnajökuls. „Ótal margir lögðu hönd á plóg við að tryggja öryggi samborgaranna með frábærum árangri. Engin alvarleg óhöpp urðu í tengslum við þetta stóra eldgos og mannskaði varð enginn. Sannarlega olli gasmengun verulegum óþægindum sums staðar og rétt er að hafa í huga að þótt eldgosinu sé lokið má enn búast við hættulegri gasmengun á umbrotasvæðinu. Vel verður fylgst með því,“ segir Sigmundur.

Hann segir að almannavarnakerfi Íslendinga sé öflugt og innan þess starfi sérfræðingar á ýmsum sviðum þétt saman, samhæfi aðgerðir og njóti stuðnings fólks um allt land. „Sjálfboðaliðar leggja á sig ómælda vinnu við að tryggja öryggi samborgaranna og ganga í öll nauðsynleg störf til að verja samfélagið.  Það má í raun segja að kerfið endurspegli margt af því besta við þjóðareinkenni sem mótast hafa með náttúrunni á síðustu 1100 árum.

Við goslok er því við hæfi að þakka öllum sem stóðu vaktina fyrir frábært starf. Björgunarsveitarfólki fyrir vöktun á svæðinu, almannavarnarnefndum, vísindamönnum og sérfræðingum fyrir faglega vinnu og fjölmiðlum fyrir vandaðan fréttaflutning, svo nokkrir séu nefndir. Þá eiga íbúar á svæðum sem næst standa Holuhrauni mikið hrós skilið fyrir yfirvegun og æðruleysi við krefjandi aðstæður.

Vísindamenn telja líklegt að eldgosið í Holuhrauni marki upphaf tímabils umbrota á svæðinu. Þeir ásamt öðrum úr hópi okkar færasta fólks munu fylgjast ítarlega með og eru við öllu búnir. Enginn veit þó fyrir víst hvað verður en Íslendingar hafa sýnt að þeir kunna að bregðast hratt og faglega við í samræmi við aðstæður. Það er traustvekjandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert