Óvissustig vegna snjóflóðahættu

Ljósmynd/ Halldór Sveinbjörnsson

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar er spáð mjög hvassri suðaustan átt með ákafri úrkomu um tíma í dag sem verður að mestu leyti í formi snævar til fjalla en slydda eða rigning á láglendi, segir í frétt frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Víða annars staðar á landinu verður einnig suðaustan hvassviðri með snjókomu eða rigningu. Það er einna helst Norðurlandið sem sleppur við úrkomuna í dag en þar hafa víða fallið flóð í skafrenningi og snjókomu undanfarið.

Frétt mbl.is: Búið að loka Hellisheiði

Sjá veðurvef mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert