Úttekt á rekstri Hafnarfjarðarhafnar

Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarhöfn mbl.is/Ómar Óskarsson

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að fram fari úttekt á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarhafnar síðastliðin tíu ár. Úttektin á hafnarsjóði verði víðtækari en áform voru um í áður samþykktri rekstrarúttekt á stofnunum Hafnarfjarðarbæjar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.

„Niðurstöður verða hafðar til hliðsjónar við mótun framtíðarstefnu í málefnum hafnarinnar þar sem m.a. er horft til hagkvæmniþátta, hugsanlegra samlegðaráhrifa við hafnir á Faxaflóasvæðinu, vaxtarmöguleika og bættrar þjónustu við viðskiptavini,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert