Hellisheiði enn lokuð

Hellisheiðin er enn lokuð.
Hellisheiðin er enn lokuð. mbl.is/Malín Brand

Hálkublettir eru á Sandskeiði en krapi og slydda í Þrengslum en lokað er um Hellisheiði. Snjóþekja og éljagangur er á Mosfellsheiði og hálka og snjóþekja í uppsveitum á Suðurlandi. Flughált er á Krísuvíkurvegi.

Samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar snýst í suð- og suðvestanátt með éljum og krapaéljum sunnan- og vestanlands. Kólnar niður undir frostmark á láglendi og víða verður hált við þessar aðstæður þegar líður á daginn. Blint í éljum vestantil, einkum á fjallvegum s.s. á Holtavörðuheiði undir kvöld. Stormur síðdegis á Snæfellsnesi og þar hviður 30 40 m/s norðantil frá því um kl. 14 og fram á kvöld. Sjá veðurvef mbl.is.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á flestum leiðum en krapi og skafrenningur á Bröttubrekku en hálka og óveður á Holtavörðuheiði. Krapi og éljagangur er á Vatnaleið en þungfært á Fróðárheiði og einnig er óveður á norðanverðu Snæfellsnesi.

Hálka eða snjóþekja er víða á Vestfjörðum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært og óveður er á Hálfdán, Mikladal og Kleifaheiði. Snjóþekja og óveður er á Kletts- og Hjallahálsi. Hálka og óveður er í Reykhólasveit og á Innstrandavegi.

Á Norðurlandi vestra er hálka og óveður í Húnavatnssýslu. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Vatnsskarði. Hálka eða hálkublettir eru á Norðurlandi eystra og sumstaðar skafrenningur en ófært er á Hólasandi og á Dettifossvegi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Mývatnsheiði og Mývatnsöræfum.

Það er hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur og skafrenningur á vegum á Austurlandi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Möðrudalsöræfum og hálka og óveður á Vatnsskarði eystra. Greiðfært er frá Fáskrúðsfirði og með suðausturströndinni að Öræfasveit en þar taka við hálkublettir eða hálka. Mikið hvassviðri er á Mýrdalssandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert