Geirvörtugleði í lauginni

Nokkuð meira var um nekt en venjulega í Laugardalslauginni nú í kvöld en þar voru samankomnar konur sem vildu enda geirvörtudaginn mikla með því að baða sig berar að ofan í lauginni.

Starfsmaður laugarinnar sem blaðamaður mbl.is ræddi við sagði að talsvert meira væri um unga karlmenn í lauginni en vanalega á þessum tíma. Væri einhver kominn til að glápa kipptu stúlkurnar sér lítið upp við það enda voru þær komnar til að njóta þess að vera berar að ofan á eigin forsendum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert