Fangar geti áunnið sér rétt til bóta

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Brynjar Gauti

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram frumvarp til breytinga á atvinnuleysistryggingum þess efnis að fangar, sem stundað hafa nám, vinnu eða starfsþjálfun, teljist tryggðir samkvæmt atvinnuleysistryggingalögum.

Nú standa fangar oftar en ekki utan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar þeir ljúka afplánun, en leggja þingmennirnir til að því verði breytt.

Í tilkynningu frá Silju Dögg segir að meðal skilyrða þess að einstaklingar hafi rétt til atvinnuleysisbóta sé að þeir hafi fengist við launuð störf eða verið sjálfstætt starfandi á tilteknu ávinnslutímabili áður en sótt er um atvinnuleysisbætur.

„Flestum þeim sem afplána refsivist eða sitja í gæsluvarðhaldi stendur ekki til boða vinna, nema að mjög takmörkuðu leyti, og ávinna sér því ekki rétt til atvinnuleysisbóta meðan á vistinni stendur.

Af þessu leiðir að oftar en ekki standa fangar utan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar þeir ljúka afplánun og því viljum við, sem að málinu stöndum, breyta. Við teljum að sú breyting myndi auka möguleika þeirra sem sitja af sér refisdóma, að koma undir sig fótunum og verða góðir og gildir samfélagsþegnar,“ segir í tilkynningunni.

Menn ættu þá einnig kost á starfsendurhæfingu, eins og þeirri sem Virk býður upp á og hefur skilað góðum árangri. Með þessu værum við að tengja nokkur kerfi saman, horfa heildstætt á málin og finna lausn til frambúðar. Við erum sannfærð um að þessi lagabreyting myndi fækka endurkomum í fangelsi landsins og það hlýtur að vera samfélagslegt markmið í sjálfu sér,“ segir Silja Dögg.

Flutningsmenn frumvarpsins eru, auk Silju Daggar, Páll Valur Björnsson, Brynhildur Pétursdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Elsa Lára Arnardóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Björt Ólafsdóttir.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert