Menntaskólanemar veittu vatnsdælugjöf

Hópurinn sem safnaði peningunum.
Hópurinn sem safnaði peningunum. ljósmynd/Af vef MTR

Nemendur í Menntaskólanum á Tröllaskaga afhentu UNICEF 374.100 krónur nú fyrir helgi, en peningarnir söfnuðust í Comeníusarverkefni sem nemendurnir tóku þátt í.

Féð sem safnaðist dugar til að kaupa og setja upp sex vatnsdælur við brunna á svæðum þar sem skortur er á hreinu vatni. Einnig verður nokkurri upphæð varið til að kaupa vatnshreinsitöflur. Þetta kemur fram á vef MTR.

Þátttakendur í Comeníusarverkefninu voru frá skólum á Spáni, Ítalíu og Þýskalandi, auk MTR. Nemendur gerðu í sameiningu dagatöl sem seld voru í löndunum fjórum og var fyrirfram ákveðið að fé sem fengist fyrir þau yrði notað til vatnsöflunar á svæðum þar sem skortur á hreinu vatni er tilfinnanlegur. Þema Comeníusarverkefnisins var vatn og á myndunum á dagatalinu var vatn.

Vatnsdælurnar eru einföld lausn á mörgum vandamálum og gagnast konum sérstaklega því víða er það þeirra verk að sækja vatn – oft um langan veg – og bera heim. Vatnsdælur stuðla að varanlegum úrbótum í heilbrigðismálum í samfélögum.

Helga Ólafsdóttir, verkefnisstýra UNICEF, þakkaði nemendunum fyrir þeirra framlag í skype-samtali í tíma á fimmtudag. Sagði hún að vatnsdælugjöfin væri langstærsta gjöf af því tagi sem samtökin hafa fengið á þessu ári. Vatnshreinsitöflur eru hins vegar notaðar í neyðarástandi, til dæmis á Kyrrahafseyjunum Vanatú þar sem fellibylur olli mikilli eyðileggingu nýlega. Meðal annars spilltust brunnar og fólk neyddist til að drekka sjó.

Hægt er að veita vatnsdælugjafir, auk ýmissa annarra á Sannargjafir.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert